Sumarbliða!



Við og litla fjöldskyldan á Kämnarsvägen 11 fengum hádegishlaðborð á mexikönskum stað. Birta var ótrúlega hress með tónlistina og okkur!
Hæhæ. Ég varð nú bara að setja inn smá um hvað það er búið að vera frábært veður hjá okkur síðustu daga. Þetta gerðist allt mjög skyndilega - fór úr 5 gráðum upp í 18-20 á nokkrum dögum. Allir komnir út í sólbað, hver einasti grasblettur tekinn. Þetta lofar samt góðu fyrir karnevalið sem verður um 17. maí og stendur yfir í nokkra daga - það er jú bara fjórða hvert ár sem slík hátíð er haldin hér svo að við teljum okkur stálheppin...

Grillað úti í garði hjá okkur. Kjartan og Tina.

Gaman saman í pikknikk, Grétar og Vala með okkur í sólbaði.
Félagi Grétar lenti einmitt í upphitun fyrir karnevalið sem var á laugardaginn - þá var smá skrúðganga úr bænum - fólk að dansa á bílum, blásandi í lúðra og klætt í svona föt eins og maður getur ímyndað sér á kjötkveðjuhátíð í Rio. Þvílík stemmning og veðrið eins og það gerist best á Íslandi, kannski aðeins betra...
Annað fyndið, vinur okkar John sem er sænskur strákur, er með Teklu í bekk og býr hérna hliðina á okkur á Delphi. Þegar hann sendir skilaboð endar hann alltaf á Love eða Kiss, hvort sem hann er að senda mér eða Teklu... voða indæll :o) Hann er samt mjög fínn!
Jæja sólin kallar. Kiss.

Helgi Skúli, Berglind og Birta litla komu með okkur í pikknikk.

6 Comments:
Hæ Kjartan og Tekla.
Við Sigga komum til Lundar í stutta heimsókn 18. - 21. maí. Vonumst til að sjá til ykkar. Verðum hjá Denna bróður.
Bestu kveðjur,
Vigdís
Þú getur líka sent mér e-mail á vigdisj@islandia.is til að svara mér.
Tekla bara segja þér að þú átt græna skó hér á Trastvagen.
Ekki skrítið þó að maður kommenti ekki mikið á blogsíðu sem er uppfærð ca. á 4 mánuða fresti ;) en damn að missa af innflutningspartýinu um helgina gengur bara betur næst og svo er skildumæting í sveitina
Hvernig er það, á ekkert að blogga frá Vestmannaeyjum? Væri það ekki ráð? ;)
Hi!
You may probably be very curious to know how one can manage to receive high yields on investments.
There is no initial capital needed.
You may begin to get income with a sum that usually goes
on daily food, that's 20-100 dollars.
I have been participating in one company's work for several years,
and I'll be glad to share my secrets at my blog.
Please visit my pages and send me private message to get the info.
P.S. I earn 1000-2000 per daily now.
http://theinvestblog.com [url=http://theinvestblog.com]Online Investment Blog[/url]
Skicka en kommentar
<< Home