Sumarið að koma...?

Hér eru þau systkinin Lea Björt og Tandri Karl.
Jæja vinir, nú er það byrjað. Bloggið komið í gang og allir hoppandi af gleði. Við höfum verið ótrúlega upptekin við annað en að skrifa en batnandi mönnum er best að lifa.
Það nýjasta nýtt er að Tekla er búin að eignast splúnkunýjan frænda sem ber heitið Tandri Karl. Til að skoða myndir er linkur hér efst á síðunni.
Við erum annars að fara að halda uppá afmæli konungsins sem fyllir 60ár á morgun - svokölluð Valborgs hátíð. Síðustu ár hafa Lundabúar safnast saman í Statsparken fyrir hádegi og gert sér glaðan dag í sólskini og fínheitum. En í ár er spáin ekki svo góð fyrir morgundaginn - þungskýjað og líklegast rigning seinnipartinn... En það er ótrúlega fínt fyrir okkur Íslendinga sem erum ekki vön öðru á útihátíðum. Stígvél og regnstakkur.

5 Comments:
Get any Desired College Degree, In less then 2 weeks.
Call this number now 24 hours a day 7 days a week (413) 208-3069
Get these Degrees NOW!!!
"BA", "BSc", "MA", "MSc", "MBA", "PHD",
Get everything within 2 weeks.
100% verifiable, this is a real deal
Act now you owe it to your future.
(413) 208-3069 call now 24 hours a day, 7 days a week.
til hamingju með litla frænda, hann er nú meira krúttið og ekkert smá mannalegur!! skemmtið ykkur annars, sjáumst kannski í svíþjóð í kringum 4 júní ef þið eruð þar enn!!!!!
Loksins Loksins Tekla og Kjarri aftur komin til lífs í bloggheiminum... var farin að sakna ykkar! Líst afar vel á Tandra litla, hann getur þá hangið með honum Pétri Þór á leikskólanum;)
Hvernær fariði aftur heim annars? svona ef ég má kíkja í heimsókn???
Hæ hæ, til hamingju aftur með frændann, hann er ekkert smá sætur!! og vá hvað Lea er orðin stór!!! ojj hvað tíminn líður hratt! Hlakka að sjá ykkur þegar þið komið heim :)
Hæ hæ
Til hamingju með litla frænda :) Þetta nafn hljómar nú kunnulega, passar mjög vel í fjölskylduna :)
Gaman að lesa bloggið ykkar, haldið áfram að vera svona dugleg að blogga :)
ps. Tekla þú þarft að senda Önnu Björns heitið á verkefninu þínu á íslensku
Skicka en kommentar
<< Home