Les 2 Alpes
Þarna er hótelið okkar í bakgrunni og krakkarnir að labba í áttina til mín.Jæja þá erum við bara komin heim af skíðum. Það var nú ótrúlega gaman. Þurftum að þola 28 tíma lestarferð plús 3 tíma í rútu fram og tilbaka en það vel þess virði - auk þess sem það kom soldið á óvart að það er ekki svo slæmt að ferðast í lest með svefnkojum.
Við stigum út í bjarta sólskin kl. 17:00 á laugardeginum og komum okkur fyrir á hótelinu okkar. Við deildum herbergi með Dabba og Dísu og svo voru tvíburarnir Davíð og Bjarni plús Snorri og Gunnar Þór í hinu herberginu. 8 vorum við í allt.
Það var mikið eldað á hótelinu og hver kvöldmáltíð var eins og 5 stjörnu stjörnumáltíð á McDonalds - neh eins og á Holtinu. Við skíðuðum allan tíman í sól og blíðviðri og var útsýnið ekki af verri endanum - fórum meira að segja einn dag á annað skíðasvæði Alpe D'Huez þar sem við fórum upp á topp og sáum með berum augum Mont Blanc !! Það var gaman.
Þetta svæði sem við vorum á Les2Alpes er þekkt fyrir brjálaða off-pist möguleika og er það alveg pottþétt ógeðslega gaman á þarna - en... við vorum í litlum snjó að þessu sinni. Hafði ekki snjóað síðan um miðjan janúar og færið mjög hart. Svörtu brekkurnar efst voru meira fyrir skauta og off pistið var útskíðað og hart. Stöðugt var maður á varðbergi að missa ekki brettið/skíðin undan sér og fyrir vikið var lítið um framfarir og stjörnustæla. Þeir voru búnir að gera myndarlegt bretta/skíða leiksvæði og tók maður nokkur stökk á big-jump og renndi sér í gegnum hálfa pípu til mikillar gleði áhorfenda... Allt gekk þetta slysalaust fyrir sig og voru menn og konur sátt að endingu. Maturinn í Frakklandi er nú bara geggjaður - þeir kunna þetta Frakkarnir - mátti heyra oftar en einu sinni hljóma í okkar hópi, reyndar einnig - the France are assholes - en það var á öðrum tímum. Þeir eru nefnilega ekkert mjög kurteisir ef þú talar ekki frönsku og sumir eru einfaldlega leiðinlegir. Fáránlegt að vinna í þjónustustarfi fyrir túrista og tala svo ekki ensku... hva er málið! En maturinn var brjálaður - Osta fondú (bráðinn ostur og hvítvín í potti og dýfir þurru brauði ofan í og borðar), Raclette (setur ost undir hitadæmi og skefur svo bráðinn ost ofan á allskonar mat t.d. skinku) og öndin sem við fengum einu sinni með appelsínusírópssósu var sú besta sem ég hef smakkað.
Jæja nóg í bili - gaman að vera komin heim ... heim í ljósgráan hversdagsleikan með möguleika á að sjá stöðuna á heimabankanum...
Ykkar Kjartan og Tekla.

Þetta er kort af brekkunum. Við vorum mest fyrir ofan fyrstu brekkurnar. Leiðirnar heim voru mjög brattar.
Þarna er ég fyrir utan einn skíðaresturantinn, það var ótrúlega góður matur oft í brekkunum en við vorum bara alltaf með samlokur.

2 Comments:
Va tetta er ekkert likt ter Kjarri!! Gaman ad heyra af ferdinni ykkar!! heyrumst :)
Nei, verð nú að viðurkenna að þetta er bara mynd sem ég fann á netinu... við Tekla vorum ekki með myndavél og eigum eftir að fá myndirnar frá krökkunum, hehe.
kv. Kjartan
Skicka en kommentar
<< Home