tisdag, november 22, 2005

Drullusokkur

Jæja þriðjudagur 22.nóv! Aðeins 3 dagar síðan að það var bloggað síðast- hlýtur að vera met fyrir þessa bloggsíðu!
Fer nú að styttast í próf hjá mér, er að fara í 5 tíma ónæmis-, sýkla, veiru-, neoplasiu-, hematologiu-próf 9.des. Frekar massíft! Kjartan er þegar búin að fara í 2 próf(geð- og tauga) og gekk bara mjög vel og hann fer svo næst í próf 9. og 10.jan. í barna- og fæðingarlækningum.
Þykir frekar leiðinlegt að við komum ekki heim til Íslands fyrr en á Þorláksmessu-23.des, eftir rúman mánuð, langseinust, eftir öllum hinum. ::( En það þýðir þó lítið að gráta það- þar sem dansað verður fram á 13:da!! :)
Ég fer ekki heim fyrr en 10. jan. en Kjartan fer 7.jan útaf prófunum. En þetta verður brjálað! Hlakka ótrúlega mikið að sjá ykkur!!

Jæja- var nú samt eiginlega helst að spá í...Drullusokkur - hvar fær maður svoleiðis?
Klósettið okkar er nefnilega stíflað!! (Hefur reyndar verið semistíflað í nokkrar vikur en núna gafst það alveg upp.)
-Egill benti okkur á Mr. Muscle... en Mr. Muscle reyndist ekki nógu sterkur fyrir klósettið okkar.
Já-frekar fúlt!
Einhver góð ráð? Eins og til dæmis, hvað heitir drullusokkur á sænsku? "skitstrumpa" hljómar allavega ekki kunnuglega -get ómögulega munað þetta!
Kveðja Tekla
þetta eru þeir Kjartan, John og Kalli. Fórum sem sagt á kaffihús í seinustu viku -John og Kalli eru með mér í bekk.

4 Comments:

Anonymous Helgi Skúli said...

Hey cool, við förum einmitt líka út 10. janúar :) spurning hvort að við séum ekki í sömu vél ;)
Fínt að þið séuð búin að kynnast aðstæðum, þá getum við yfirheyrt ykkur þegar við komum út.... hehehe....

23/11/05 00:55  
Blogger Kjartan og Tekla said...

Gaman að heyra í pabbanum! Vona að allt gangi vel, ég fer út þann 7. jan og Tekla fer út þann 10. jan. Ég þarf að taka próf 9. og 10. jan hér úti... En það verdur gaman að sjá ykkur 3. manna fjölsk. um jólin!!! Heyrumst.

23/11/05 07:19  
Anonymous Thura said...

good luck beibí, biluð klósett verða alltaf biluð, bara hættað henda bómull í klóstið ;) ....
Hlakka til að rottast með þér um jólin .... :*

24/11/05 05:24  
Anonymous Halla og "elbumbos" said...

Hæ sæta systir og Kjartan auðvitað!

En gaman að sjá að síðan ykkar er aftur kokmmin á skrið. Væri svo ógeðslega til í að koma til ykkar:-(
Hlakka geðveikt til að hitta ykkur, svo sagði Lea um daginn "mamma hvenær koma Tekla og Kjartan heim? Ég sakna þeirra svo". Ekkert smá krúttlegt, svo er það líka hann bumbos hann er voða spenntur að heyra í ykkur:-)
Gangi ykkur annars bara vel! Heyri í ykkur bráðlega.
kveðja Halla, Lea og Krissi

24/11/05 10:07  

Skicka en kommentar

<< Home