tisdag, oktober 18, 2005

Hæ aftur!


Jæja nú byrjar það. Við erum komin með netið!!! Geggjað gaman. Nú er hægt að tengjast bara heima í stofu - þvílíkur lúxus. Myndin er af loftbelgjum sem flugu yfir lund fyrir nokkru.

Fréttir af okkur... við erum búin að flytja inn, koma okkur fyrir med húsgögnum úr ... hvað haldiði? Mjög næs, lítið en næs. Ég held að ég geti sett myndir fyrir forvitna ...



Ég er byrjaður og búinn með taugalæknisfræði kúrsinn og er á fullu í geðlæknisfræði. Búinn að taka verklegt og skriflegt próf og halda smá fyrirlestur - allt á sænsku... já já takka. Það er annars nóg að gera í skólanum, ég er frá 8-17 næstum alla daga og svo þarf maður jú að lesa eitthvað. En helgarnar hafa verið í ,,rólegheitum", við erum búin að kynnast nýjum íslendingum Völu, Grétari og Arnóri (kærasta Vöku) og þeir eru ágætir :o) Egill okkar er nánast alltaf upptekinn - dama frá Bandaríkjunum sem er að halda honum uppteknum.

Hér er annars gegðveikt gaman að vera, hlýtt (miðað við á Íslandi) og rólegt andrúmsloft. Mjög fyndið hvað það er mikil traffík á hjólastígunum.

8 Comments:

Anonymous Anonym said...

Den här kommentaren har tagits bort av bloggadministratören.

18/10/05 19:53  
Anonymous Anonym said...

Den här kommentaren har tagits bort av bloggadministratören.

18/10/05 20:00  
Anonymous Thura said...

Til hamingju med ibudina!! Litur vel ut :)... vildi ad tad vaeri IKEA i ammerikunni.

20/10/05 14:41  
Anonymous Guðrún Fönn said...

Hæ, fín íbúðin hjá ykkur, lítil og krúttleg :) Ég sé að þú ert komin með nafn á rannsóknaverkefnið Tekla, reddaðist þetta allt? Knús og kossar..

21/10/05 22:21  
Anonymous Thura said...

jaeja krakkar minir, hvad er nu ad fretta !??

1/11/05 19:55  
Anonymous Helgi Skúli said...

Hvað er að frétta? Langt síðan að þið létuð í ykkur heyra.
Við Berglind erum annars komin með 3ja herbergja íbúð við Kämnärsvägen 11, þannig að Kjarri þú verður að vera í góðu formi í Janúar :)

12/11/05 13:44  
Blogger Vaka said...

Jæja, á ekkert að fara að setja inn nýja færslu???

Ég heimta myndir frá Halloween partýinu :-)

Kv. Vaka

14/11/05 12:51  
Anonymous Lára Lára said...

Kjarri.. ég þekki Völu og Gretar.. já elskan mín. Lítill heimur en þú vissir það svosum.

17/11/05 18:38  

Skicka en kommentar

<< Home