måndag, maj 08, 2006

Sumarbliða!




Við og litla fjöldskyldan á Kämnarsvägen 11 fengum hádegishlaðborð á mexikönskum stað. Birta var ótrúlega hress með tónlistina og okkur!

Hæhæ. Ég varð nú bara að setja inn smá um hvað það er búið að vera frábært veður hjá okkur síðustu daga. Þetta gerðist allt mjög skyndilega - fór úr 5 gráðum upp í 18-20 á nokkrum dögum. Allir komnir út í sólbað, hver einasti grasblettur tekinn. Þetta lofar samt góðu fyrir karnevalið sem verður um 17. maí og stendur yfir í nokkra daga - það er jú bara fjórða hvert ár sem slík hátíð er haldin hér svo að við teljum okkur stálheppin...

Grillað úti í garði hjá okkur. Kjartan og Tina.

Gaman saman í pikknikk, Grétar og Vala með okkur í sólbaði.
Félagi Grétar lenti einmitt í upphitun fyrir karnevalið sem var á laugardaginn - þá var smá skrúðganga úr bænum - fólk að dansa á bílum, blásandi í lúðra og klætt í svona föt eins og maður getur ímyndað sér á kjötkveðjuhátíð í Rio. Þvílík stemmning og veðrið eins og það gerist best á Íslandi, kannski aðeins betra...
Annað fyndið, vinur okkar John sem er sænskur strákur, er með Teklu í bekk og býr hérna hliðina á okkur á Delphi. Þegar hann sendir skilaboð endar hann alltaf á Love eða Kiss, hvort sem hann er að senda mér eða Teklu... voða indæll :o) Hann er samt mjög fínn!
Jæja sólin kallar. Kiss.

Helgi Skúli, Berglind og Birta litla komu með okkur í pikknikk.

lördag, april 29, 2006

Tandra Karls heimasíða

Sumarið að koma...?


Hér eru þau systkinin Lea Björt og Tandri Karl.

Jæja vinir, nú er það byrjað. Bloggið komið í gang og allir hoppandi af gleði. Við höfum verið ótrúlega upptekin við annað en að skrifa en batnandi mönnum er best að lifa.

Það nýjasta nýtt er að Tekla er búin að eignast splúnkunýjan frænda sem ber heitið Tandri Karl. Til að skoða myndir er linkur hér efst á síðunni.

Við erum annars að fara að halda uppá afmæli konungsins sem fyllir 60ár á morgun - svokölluð Valborgs hátíð. Síðustu ár hafa Lundabúar safnast saman í Statsparken fyrir hádegi og gert sér glaðan dag í sólskini og fínheitum. En í ár er spáin ekki svo góð fyrir morgundaginn - þungskýjað og líklegast rigning seinnipartinn... En það er ótrúlega fínt fyrir okkur Íslendinga sem erum ekki vön öðru á útihátíðum. Stígvél og regnstakkur.

tisdag, februari 14, 2006

Les 2 Alpes

Þarna er hótelið okkar í bakgrunni og krakkarnir að labba í áttina til mín.

Jæja þá erum við bara komin heim af skíðum. Það var nú ótrúlega gaman. Þurftum að þola 28 tíma lestarferð plús 3 tíma í rútu fram og tilbaka en það vel þess virði - auk þess sem það kom soldið á óvart að það er ekki svo slæmt að ferðast í lest með svefnkojum.
Við stigum út í bjarta sólskin kl. 17:00 á laugardeginum og komum okkur fyrir á hótelinu okkar. Við deildum herbergi með Dabba og Dísu og svo voru tvíburarnir Davíð og Bjarni plús Snorri og Gunnar Þór í hinu herberginu. 8 vorum við í allt.
Það var mikið eldað á hótelinu og hver kvöldmáltíð var eins og 5 stjörnu stjörnumáltíð á McDonalds - neh eins og á Holtinu. Við skíðuðum allan tíman í sól og blíðviðri og var útsýnið ekki af verri endanum - fórum meira að segja einn dag á annað skíðasvæði Alpe D'Huez þar sem við fórum upp á topp og sáum með berum augum Mont Blanc !! Það var gaman.

Þetta svæði sem við vorum á Les2Alpes er þekkt fyrir brjálaða off-pist möguleika og er það alveg pottþétt ógeðslega gaman á þarna - en... við vorum í litlum snjó að þessu sinni. Hafði ekki snjóað síðan um miðjan janúar og færið mjög hart. Svörtu brekkurnar efst voru meira fyrir skauta og off pistið var útskíðað og hart. Stöðugt var maður á varðbergi að missa ekki brettið/skíðin undan sér og fyrir vikið var lítið um framfarir og stjörnustæla. Þeir voru búnir að gera myndarlegt bretta/skíða leiksvæði og tók maður nokkur stökk á big-jump og renndi sér í gegnum hálfa pípu til mikillar gleði áhorfenda... Allt gekk þetta slysalaust fyrir sig og voru menn og konur sátt að endingu. Maturinn í Frakklandi er nú bara geggjaður - þeir kunna þetta Frakkarnir - mátti heyra oftar en einu sinni hljóma í okkar hópi, reyndar einnig - the France are assholes - en það var á öðrum tímum. Þeir eru nefnilega ekkert mjög kurteisir ef þú talar ekki frönsku og sumir eru einfaldlega leiðinlegir. Fáránlegt að vinna í þjónustustarfi fyrir túrista og tala svo ekki ensku... hva er málið! En maturinn var brjálaður - Osta fondú (bráðinn ostur og hvítvín í potti og dýfir þurru brauði ofan í og borðar), Raclette (setur ost undir hitadæmi og skefur svo bráðinn ost ofan á allskonar mat t.d. skinku) og öndin sem við fengum einu sinni með appelsínusírópssósu var sú besta sem ég hef smakkað.

Jæja nóg í bili - gaman að vera komin heim ... heim í ljósgráan hversdagsleikan með möguleika á að sjá stöðuna á heimabankanum...
Ykkar Kjartan og Tekla.

Þetta er kort af brekkunum. Við vorum mest fyrir ofan fyrstu brekkurnar. Leiðirnar heim voru mjög brattar.
Þarna er ég fyrir utan einn skíðaresturantinn, það var ótrúlega góður matur oft í brekkunum en við vorum bara alltaf með samlokur.

fredag, december 16, 2005

Piparkökur og glögg


Sæl!!
Vildum bara deila með jólastemningunni hér á bæ. Vala og Grétar komu í heimsókn í gær og voru piparkökur skornar út og drukkið glögg.



tisdag, december 13, 2005

Vaka og eg...

Það var svona leikur á blogginu hennar Vöku((Eins og þið kannski vitið þá erum við núna saman á ári í læknisfræði)

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

og þar sem ég verð eigilega að fylgja leikreglum(og þar sem þetta rifjar upp góðar minnningar... :)).. þá sleppi ég svörunum lausum hérna..

1. þú ert "elsta" vinkona mín, við eigum báðar kærasta sem eiga afmæli 18. júní, þú ert að blómstra í læknanáminu í Svíþjóð
2. Gömul 80´s jólalög, eins og Snjókorn falla...
3. Kakó, þú kenndir mér að setja kakó út á seríósið...
4. Þú komst í 1. bekk í Ólafsvík, og teiknaðir flotta kisumynd (af því þú áttir kött), ég gerði það líka (og átti líka kött) svo kennarinn lét þig setjast hjá mér. Eftir skóla fór ég heim og sagði: Mamma mamma, það er komin ný stelpa í skólann, hún heitir Tekla. Mamma: nei, heitir hún ekki Hekla? Ég: Nei, Tekla, kennarinn sagði það. Mamma: Ertu alveg viss? (hélt að ég væri orðin eitthvað kreisí). Svo kom ég í heimsókn til þín daginn eftir, á laugardagsmorgni (kl svona 10-11) og var mjög hissa á að þú værir enn þá á náttfötunum, varst að horfa á jólateiknimyndir í sjónvarpinu. Síðan þá vorum við nánast óaðskiljanlegar, hehe.
5. Köttur, eins og hann Snúður þinn sem var dúkkan okkar, klæddum hann í dúkkuföt og keyrðum hann í dúkkukerru
6. Af hverju ferðu ekki fyrr að sofa á kvöldin?? Tíhí


-alltaf gaman að detta inn í smá nostalgíufíling. Vil samt gera eina athugasemd, kötturinn snúður var alvöru köttur og engin dúkka en honum fannst þetta líka gaman, er það ekki Vaka?
Þegar að við vorum svona sirka átta- níu ára áttum við líka sameigilegan fjárhag og keyptum okkur svo glóálfa fyrir peninginn..og glórottu. Svo kom að því að þegar að við vorum tíu ára flutti Vaka til Hafnarfjarðar og ég til Svíþjóðar... Og varð þá smá vandamál með forræðið á þessum glóandi álfum, en við leystum auðvitað úr því...
Leiðinlegt að eiga ekki myndir af þessu hérna :(
En svona talandi um myndir þá er ég að uppdatera myndasíðuna okkar með fleiri myndum.
Puss Puss

torsdag, november 24, 2005

Myndasiða

Kíkjiði endilega á nýju myndasíðuna okkar..reikna með að það verði komin inn fleiri albúm í kvöld 24.nóv.
http://public.fotki.com/tekla/
Kv Tekla og Kjarri

tisdag, november 22, 2005

Drullusokkur

Jæja þriðjudagur 22.nóv! Aðeins 3 dagar síðan að það var bloggað síðast- hlýtur að vera met fyrir þessa bloggsíðu!
Fer nú að styttast í próf hjá mér, er að fara í 5 tíma ónæmis-, sýkla, veiru-, neoplasiu-, hematologiu-próf 9.des. Frekar massíft! Kjartan er þegar búin að fara í 2 próf(geð- og tauga) og gekk bara mjög vel og hann fer svo næst í próf 9. og 10.jan. í barna- og fæðingarlækningum.
Þykir frekar leiðinlegt að við komum ekki heim til Íslands fyrr en á Þorláksmessu-23.des, eftir rúman mánuð, langseinust, eftir öllum hinum. ::( En það þýðir þó lítið að gráta það- þar sem dansað verður fram á 13:da!! :)
Ég fer ekki heim fyrr en 10. jan. en Kjartan fer 7.jan útaf prófunum. En þetta verður brjálað! Hlakka ótrúlega mikið að sjá ykkur!!

Jæja- var nú samt eiginlega helst að spá í...Drullusokkur - hvar fær maður svoleiðis?
Klósettið okkar er nefnilega stíflað!! (Hefur reyndar verið semistíflað í nokkrar vikur en núna gafst það alveg upp.)
-Egill benti okkur á Mr. Muscle... en Mr. Muscle reyndist ekki nógu sterkur fyrir klósettið okkar.
Já-frekar fúlt!
Einhver góð ráð? Eins og til dæmis, hvað heitir drullusokkur á sænsku? "skitstrumpa" hljómar allavega ekki kunnuglega -get ómögulega munað þetta!
Kveðja Tekla
þetta eru þeir Kjartan, John og Kalli. Fórum sem sagt á kaffihús í seinustu viku -John og Kalli eru með mér í bekk.